Nokia C5 03 - Uppsetning forrita

background image

Uppsetning forrita
Hægt er að flytja uppsetningarskrár í tækið úr samhæfðri tölvu, hlaða þeim niður

þegar vafrað er eða fá þær sendar sem margmiðlunarboð, sem tölvupóstsviðhengi

eða nota aðrar tengiaðferðir, svo sem Bluetooth.

Hægt er að nota Nokia Application Installer í Nokia Ovi Suite til að setja upp forrit í

tækinu.

Veldu

Valmynd

>

Stillingar

og

Forritastjórnun

.

Uppsetningarskrárnar eru í möppunni Uppsetn.skrár, og uppsettu forritin í möppunni

Uppsett forrit.

Tákn sýna eftirfarandi:

SIS- eða SISX-forrit

Java-forrit

Smáforrit

Forrit sett upp á minniskortinu

Áður en forrit er sett upp skal gæta að eftirfarandi atriðum:

Athuga skal gerð forritsins, útgáfunúmer og seljanda eða framleiðanda forritsins.

Veldu forrit.

Önnur forrit

97

background image

Skoða skal upplýsingar um öryggisvottorð forritsins. Veldu

Vottorð:

>

Skoða

upplýsingar

.

Ef sett er upp skrá með uppfærslu eða lagfæringu á forriti er aðeins hægt að

endurheimta upphaflega forritið ef fyrir hendi er upphaflega uppsetningarskráin eða

fullkomið afrit af hugbúnaðarpakkanum sem var fjarlægður. Til að endurheimta

upphaflega forritið skaltu fyrst fjarlægja forritið og setja það svo upp aftur með því

að nota upphaflegu uppsetningarskrána eða öryggisafritið.

Nauðsynlegt er að hafa JAR-skrá til að setja upp Java-forrit. Ef skrána vantar getur

tækið beðið þig um að hlaða henni niður. Ef enginn aðgangsstaður er tilgreindur fyrir

forritið biður tækið þig um að velja aðgangsstað.

Uppsetning forrits

1 Staðsetja skal uppsetningarskrá í möppunni fyrir uppsetningarskrár í

forritastjórnun eða leita að henni í skráastjórnun eða í innhólfi skilaboða.

2 Í forritastjórnun velurðu forritið sem á að setja upp og heldur því inni, og af

sprettivalmyndinni velurðu

Setja upp

. Í öðrum forritum velurðu

uppsetningarskrána til að hefja uppsetninguna.
Meðan á uppsetningu stendur birtir tækið upplýsingar um stöðu

uppsetningarinnar. Ef þú setur upp forrit án rafrænnar undirskriftar eða vottorðs

birtir tækið viðvörun. Þú skalt aðeins halda áfram að setja upp forritið ef þú ert

viss um uppruna þess og innihald.

Uppsett forrit opnað
Veldu forritið á valmyndinni. Ef forritið er ekki með sjálfgefna möppu skilgreinda er

það sett upp í möppunni Uppsett forrit á aðalvalmyndinni.

Sjáðu hvaða hugbúnaðarpakkar hafa verið settir upp eða fjarlægðir
Veldu

Valkostir

>

Skoða notkunarskrá

.