Nokia C5 03 - Höfundarréttur og önnur ákvæði

background image

Höfundarréttur og önnur ákvæði

YFIRLÝSING UM SAMKVÆMNI

Hér með lýsir NOKIA CORPORATION því yfir að varan RM-697 sé í samræmi við grunnkröfur og önnur viðeigandi fyrirmæli

tilskipunar 1999/5/EB. Afrit af samræmisyfirlýsingunni má finna á http://www.nokia.com/global/declaration .

Fyrir tæki sem sett voru á markað fyrir 1. júlí 2012 gefur tilkynningartáknið til kynna takmarkanir á notkun virkni þráðlauss

staðarnets í Frakklandi. Í samræmi við ákvörðun ESB 2009/812/EB tengist tilkynningartáknið ekki lengur virkni þráðlauss

staðarnets fyrir þetta tæki eftir 1. júlí 2012 og því er hægt að líta framhjá tákninu jafnvel þótt það sé enn til staðar í tækinu.

© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.

Nokia og Nokia Connecting People eru vörumerki eða skrásett vörumerki Nokia Corporation. Nokia tune er tónmerki Nokia

Corporation. Önnur vöruheiti eða heiti fyrirtækja sem nefnd eru hér geta verið vörumerki eða vöruheiti viðkomandi eigenda.

Hvers konar afritun, yfirfærsla, dreifing eða varðveisla á hluta skjals þessa eða skjalinu öllu er óheimil nema að fyrirfram

fengnu skriflegu samþykki Nokia. Nokia framfylgir stefnu sem felur í sér stöðuga þróun. Nokia áskilur sér rétt til að gera

breytingar og úrbætur á hvers konar vöru sem getið er í þessu skjali án undangenginnar tilkynningar.

Java and all Java-based marks are trademarks or registered trademarks of Sun Microsystems, Inc.

The Bluetooth word mark and logos are owned by the Bluetooth SIG, Inc. and any use of such marks by Nokia is under license.

Þessi vara hefur leyfið MPEG-4 Visual Patent Portfolio License (i) til einkanotkunar og án viðskiptatilgangs í tengslum við

upplýsingar sem hafa verið kóðaðar samkvæmt staðlinum MPEG-4 Visual Standard af neytanda í persónulegum tilgangi og

án viðskiptatilgangs og (ii) til notkunar í tengslum við MPEG-4 hreyfimynd sem fengin er hjá hreyfimyndaveitu með leyfi.

Ekkert leyfi er veitt eða undirskilið til neinnar annarrar notkunar. Viðbótarupplýsingar, sem varða til dæmis notkun í

auglýsingum, innan fyrirtækis og í viðskiptum, má fá hjá MPEG LA, LLC. Sjá http://www.mpegla.com.

Að því marki sem viðeigandi lög leyfa ber Nokia eða einhverjir af leyfisveitendum þess, undir engum kringumstæðum, ábyrgð

á tapi gagna eða tekjutapi og ekki á beinu eða óbeinu tjóni, þar á meðal útlögðum kostnaði, tekjutapi eða missi ágóða, af

hvaða orsökum sem tjón kann að vera.

Inntak þessa skjals er afhent „eins og það kemur fyrir“. Umfram það, er lög áskilja, er engin ábyrgð veitt, hvorki berum orðum

né undirskilin, á nákvæmni, áreiðanleika eða inntaki þessa skjals. Á það meðal annars, en ekki eingöngu, við um söluhæfni

eða ábyrgð á að varan henti tiltekinni notkun. Nokia áskilur sér rétt til að endurskoða skjalið eða draga það til baka hvenær

sem er án undangenginnar tilkynningar.

Bakhönnun (e. reverse engineering) hugbúnaðar í tækinu er bönnuð eins og lög segja til um. Að því marki er þessi

notendahandbók inniheldur einhverjar takmarkanir á fyrirsvari, ábyrgðum og skaðabótaskyldu Nokia, auk takmarkana á

Höfundarréttur og önnur ákvæði 117

background image

fjárhæð skaðabóta, skulu þær takmarkanir einnig ná til sérhvers fyrirsvars, ábyrgða og skaðabótaskyldu leyfisveitanda

Nokia, auk takmarkana á fjárhæð skaðabóta.

Framboð á vörum, eiginleikum, forritum og þjónustu getur verið breytilegt eftir svæðum. Söluaðili Nokia eða þjónustuveitan

gefa nánari upplýsingar. Tæki þetta kann að innihalda vörur, tækni eða hugbúnað sem lýtur útflutningslögum og reglugerðum

í Bandaríkjunum og öðrum löndum. Breytingar á flutningsleiðum sem ekki samræmast lögum eru óheimilar.

Nokia veitir hvorki ábyrgð á forritum frá þriðja aðila sem fylgja með tækinu né ábyrgist virkni slíkra forrita, efni þeirra eða

stuðning við notendur. Með notkun forrits samþykkir þú að forritið sé afhent eins og það kemur fyrir. Nokia er ekki í fyrirsvari

og ber ekki ábyrgð á forritum frá þriðja aðila sem fylgja með tækinu né ábyrgist virkni slíkra forrita, efni eða stuðning við

notendur.

Framboð á Nokia-þjónustu getur verið mismunandi eftir svæðum.

Tilkynning frá Alríkisnefndinni um fjarskipti
Tækið þitt getur valdið truflunum á sjónvarpi eða útvarpi (til dæmis þegar sími er notaður nálægt viðtökutæki). Alríkisnefndin

um fjarskipti getur farið fram á að notkun símans sé hætt ef ekki er hægt að koma í veg fyrir slíka truflun. Ef þú þarft aðstoð

skaltu hafa samband við þjónustuaðila í nágrenni við þig. Þetta tæki er í samræmi við 15. hluta FCC-reglnanna. Notkun þess

er háð eftirfarandi tveimur skilyrðum: (1) Tækið má ekki valda skaðlegum truflunum; og (2) tækið verður að taka við öllum

truflunum sem það verður fyrir, þ.m.t. truflunum sem geta valdið óæskilegri virkni þess. Sérhverjar breytingar sem Nokia

hefur ekki samþykkt berum orðum geta ógilt heimild notandans til notkunar búnaðarins.

Sumar aðgerðir og valkostir velta á SIM-kortinu og/eða símkerfinu, MMS, eða samhæfni tækja og því um hvaða efni er að

ræða. Fyrir notkun sumrar þjónustu er tekið viðbótargjald.

/Útgáfa 2.3 IS

118 Höfundarréttur og önnur ákvæði