Nokia C5 03 - Aukin ending rafhlöðu

background image

Aukin ending rafhlöðu
Ýmsar aðgerðir tækisins ganga á rafhlöðu símans og draga úr endingu hennar. Til að

spara rafhlöðuna skaltu hafa eftirfarandi í huga:

Aðgerðir sem nota Bluetooth-tengingu eða leyfa slíkum aðgerðum að keyra í

bakgrunni meðan aðrar aðgerðir eru í notkun krefjast aukinnar rafhlöðuorku.

Slökktu á Bluetooth þegar þú þarft ekki að nota það.

Eiginleikar sem nota þráðlaus staðarnet (WLAN) eða leyfa slíkum eiginleikum að

keyra í bakgrunni meðan aðrir eiginleikar eru í notkun eyða meira af rafhlöðunni.

Slökkt er á þráðlausu staðarneti þegar ekki er verið að reyna að tengjast, engin

tenging er við aðgangsstað eða ekki er verið að leita að tiltæku netkerfi. Til að

spara rafhlöðuna enn frekar er hægt að stilla tækið þannig að það leiti ekki eða

leiti sjaldnar að tiltækum netkerfum í bakgrunninum.

Ef þú hefur valið

Pakkagagnatenging

>

Ef samband næst

í tengingarstillingunum

og ef það er engin pakkagagnatenging (GPRS) reynir síminn reglulega að koma á

pakkagagnatengingu. Til að lengja starfhæfan tíma tækisins velurðu

Pakkagagnatenging

>

Ef með þarf

.

Kortaforritið hleður niður nýjum kortaupplýsingum þegar þú ferð á ný svæði á

kortinu en það eykur á orkuþörfina. Hægt er að koma í veg fyrir sjálfvirkt niðurhal

á nýjum kortum.

Ef sendistyrkur farsímakerfisins er breytilegur á þínu svæði verður tækið

reglulega að leita að tiltækum símkerfum. Þetta eykur orkuþörfina.

Ef símkerfið er stillt á tvöfalda stillingu í símkerfisstillingum leitar tækið að 3G-

símkerfinu. Til að láta símann nota einungis GSM-símkerfið velurðu

Valmynd

>

Stillingar

og

Tengingar

>

Símkerfi

>

Símkerfi

>

GSM

.

Baklýsing skjásins eykur orkuþörfina. Í skjástillingunum getur þú stillt birtustig og

breytt tímanum sem þú vilt að líði þar til slökkt er á baklýsingunni. Veldu

Valmynd

>

Stillingar

og

Sími

>

Skjár

>

Birtustig

eða

Tímamörk ljósa

.

Keyrsla forrita í bakgrunni krefst aukinnar rafhlöðuorku. Til að velja forrit sem

ekki eru í notkun heldurðu valmyndartakkanum inni og velur forrit.