Upplýsingar um staðsetningu
Hægt er að bæta upplýsingum um hvar mynd er tekin sjálfkrafa við aðrar upplýsingar
um hana.
Veldu
Valmynd
>
Forrit
>
Myndavél
.
52
Myndavél
Til að setja inn upplýsingar um tökustað allra mynda velurðu
Valkostir
>
Stillingar
>
Sýna GPS-upplýsingar
>
Kveikt
.
Það getur tekið nokkrar mínútur að fá staðsetningarhnitin. Staðsetning, byggingar,
náttúrulegar hindranir, auk veðurskilyrða, kunna að hafa áhrif á móttöku og gæði GPS-
merkja. Ef skrá sem inniheldur upplýsingar um staðsetningu er samnýtt eru einnig
staðsetningarupplýsingarnar samnýttar og þriðji aðili sem sér skrána kann að sjá
staðsetninguna. Tækið þarf netþjónustu til að að geta fengið upplýsingar um
staðsetningu.
Upplýsingar um staðsetningu:
— Upplýsingar um staðsetningu eru ekki tiltækar. GPS er áfram virkt í
bakgrunninum í nokkrar mínútur. Ef gervihnattartenging næst og vísirinn breytist í
á þessum mínútum eru allar myndirnar og hreyfimyndirnar sem þá eru teknar merktar
samkvæmt upplýsingum um GPS-staðsetningu.
— Upplýsingar um staðsetningu eru tiltækar. Upplýsingum um staðsetningu er
bætt við aðrar skráarupplýsingar.
Hægt er að bæta staðsetningarupplýsingum við mynd eða myndskeið ef hnit finnast
í gegnum símkerfinu. Það getur tekið nokkrar mínútur að taka við hnitum. Best er að
vera á opnu svæði, fjarri háum byggingum.
Ef þú samnýtir mynd eða myndskeið með staðsetningarupplýsingum eru þær
upplýsingar einnig samnýttar og staðsetning þín kann því að vera sýnileg þriðju aðilum
sem geta skoðað myndina eða myndskeiðið.
Hægt er að slökkva á hnitamerkingu í stillingum myndavélarinnar.