Nokia C5 03 - Mail for Exchange

background image

Mail for Exchange
Með Mail for Exchange geturðu fengið vinnupóstinn þinn sendan í tækið. Þú getur

lesið og svarað tölvupóstinum, skoðað og breytt samhæfum viðhengjum, séð

dagbókarupplýsingar, móttekið og svarað fundarboðum, tímasett fundi og skoðað,

sett inn og breytt upplýsingum um tengiliði.

Notkun Mail for Exchange takmarkast við samstillingu með OTA-tækni á PIM-

upplýsingum milli Nokia-tækisins og viðurkennda Microsoft Exchange miðlarans.

Mail for Exchange er einungis hægt að setja upp ef fyrirtæki þitt er með Microsoft

Exchange Server. Auk þess verður kerfisstjóri fyrirtækisins að virkja Mail for Exchange

fyrir reikninginn þinn.

Áður en hafist er handa við uppsetningu á Mail for Exchange skaltu tryggja að þú sért

með eftirfarandi:

Auðkenni fyrir fyrirtækistölvupóst

Notandanafn þitt á fyrirtækisnetinu

Lykilorð þitt á fyrirtækisnetinu

Lénsheiti netsins (hafðu samband við tölvudeild fyrirtækisins)

42

Skilaboð

background image

Miðlaraheiti þitt fyrir Mail for Exchange (hafðu samband við tölvudeild

fyrirtækisins)

Þú þarft hugsanlega að færa inn aðrar upplýsingar til viðbótar þeim sem áður er lýst,

allt eftir uppsetningu Mail for Exchange-miðlara fyrirtækisins. Ef þú veist ekki réttar

upplýsingar skaltu hafa samband við tölvudeild fyrirtækisins.

Hugsanlega er nauðsynlegt að nota læsingarkóðann með Mail for Exchange.

Sjálfgefinn læsingarkóði tækisins er 12345, en hugsanlega hefur tæknistjóri

fyrirtækisins breytt honum fyrir þig.

Til að opna og breyta sniði og stillingum Mail for Exchange velurðu

Valmynd

>

Stillingar

>

Sími

>

Stillingar forrita

>

Skilaboð

.