Nokia C5 03 - Ritun og sending skilaboða

background image

Ritun og sending skilaboða
Veldu

Valmynd

>

Skilaboð

.

Til að geta búið til margmiðlunarskilaboð eða skrifað tölvupóst verða réttar

tengistillingar að vera fyrir hendi.

Ef hluturinn sem settur er í margmiðlunarskilaboð er of stór fyrir símkerfið getur

tækið minnkað hann sjálfkrafa.

Aðeins samhæf tæki geta tekið á móti og birt margmiðlunarskilaboð. Skilaboð geta

litið mismunandi út eftir tækjum.

Athugaðu stærðartakmörk tölvupóstskeyta hjá þjónustuveitunni. Ef þú reynir að

senda tölvupóst sem er yfir mörkum tölvupóstmiðlarans eru skilaboðin áfram í

möppunni Úthólf og tækið reynir reglulega að senda þau. Gagnatenging er nauðsynleg

til að hægt sé að senda tölvupóst og þjónustuveitan kann að innheimta gjald fyrir

endurteknar tilraunir til að senda tölvupóst. Hægt er að eyða slíkum skilaboðum í

möppunni Úthólf eða færa þau yfir í möppuna Drög.

Það þarf netþjónustu til að geta sent skilaboð.

Senda texta- eða margmiðlunarskilaboð
Veldu

Ný skilaboð

.

Senda hljóð- eða póstskilaboð
Veldu

Valkostir

>

Búa til skilaboð

og viðeigandi valmöguleika.

Velja viðtakendur eða hópa af tengiliðalistanum
Veldu á tækjastikunni.

Sláðu inn númer eða netfang handvirkt
Veldu

Til

efnisreitinn.

Skilaboð

37

background image

Sláðu inn titil tölvupósts- eða margmiðlunarskilaboða
Sláðu hann inn í reitinn Efni. Ef reiturinn Efni sést ekki velurðu

Valkostir

>

Skilaboðahausar

til að breyta reitunum sem sjást.

Skrifaðu skilaboðin
Veldu skilaboðareitinn.

Bættu hlut við skilaboð eða póst
Veldu og viðeigandi tegund af efni.
Tegund skilaboða kann að breytast í margmiðlunarskilaboð eftir því hvert efnið er.

Senda skilaboðin eða póstinn
Veldu

, eða ýttu á hringitakkann.

Hægt er að senda textaskilaboð sem eru lengri en stafafjöldi í einum skilaboðum leyfir.

Lengri skilaboð eru send sem tvö eða fleiri skilaboð. Þjónustuveitan tekur hugsanlega

gjald í samræmi við það.

Stafir sem nota kommur, önnur tákn eða valkosti sumra tungumála taka meira pláss

og takmarka þann stafafjölda sem hægt er að senda í einum skilaboðum.