Um A-GPS (Assisted GPS)
Tækið styður A-GPS (Assisted GPS) (sérþjónusta). Þegar þú kveikir á A-GPS tekur tækið
á móti gervihnattarupplýsingum frá hjálpargagnamiðlara um farsímakerfið. Tækið
getur verið fljótara að ná GPS-staðsetningu ef hjálpargögn eru notuð.
Tækið er forstillt þannig að það noti Nokia A-GPS þjónustuna, ef engar sérstakar A-
GPS stillingar frá þjónustuveitunni eru í boði. Hjálpargögnin eru aðeins sótt frá Nokia
A-GPS þjónustumiðlaranum þegar þörf krefur.
Það verður að vera internetaðgangsstaður í tækinu til að hægt sé að sækja
hjálpargögn frá Nokia A-GPS þjónustunni um pakkagagnatengingu.
Aðgangsstaður fyrir A-GPS valinn
Veldu
Valmynd
>
Forrit
>
Staðsetning
og
Staðarákvörðun
>
Miðlari fyrir
staðarákv.
>
Aðgangsstaður
. Aðeins er hægt að nota internetaðgangsstað fyrir
pakkagögn í þessari þjónustu. Tækið biður um internetaðgangsstað þegar GPS er
notað í fyrsta skipti.