Nokia C5 03 - Sími og SIM

background image

Sími og SIM
Veldu

Valmynd

>

Stillingar

og

Sími

>

Símastjórnun

>

Öryggi

>

Sími og SIM-kort

.

Veldu úr eftirfarandi:

104 Stillingar

background image

Beiðni um PIN-númer — Þegar kveikt er á þessari stillingu er beðið um númerið í

hvert skipti sem kveikt er á tækinu. Sum SIM-kort leyfa ekki að hægt sé að gera beiðni

um PIN-númer óvirka.
PIN-númer og PIN2-númer — Breyttu PIN og PIN2-númeri. Þessi númer geta aðeins

innihaldið tölustafi. Forðastu að nota aðgangsnúmer sem líkist neyðarnúmerum, t.d.

112, til að komast hjá því að hringja óvart í neyðarnúmer. Hafðu samband við

þjónustuveituna ef þú glatar PIN- eða PIN2-númerinu þínu. Ef þú gleymir

læsingarkóðanum skaltu hafa samband við Nokia Care þjónustuver eða

þjónustuveituna þína.
Læsingarkóði — Læsingarkóðinn er notaður þegar tækið er tekið úr lás. Breyttu

læsingarkóðanum til að koma í veg fyrir óleyfilega notkun tækisins. Forstillta númerið

er 12345. Nýja númerið getur verið 4-255 stafir að lengd. Nota má bæði bókstafi og

tölustafi, og hástafi og lágstafi. Tækið lætur þig vita ef læsingarkóðinn er ekki

forsniðinn á réttan hátt. Nýja kóðanum skal haldið leyndum og fjarri tækinu.
Sjálfv. læsingartími síma — Til að koma í veg fyrir óleyfilega notkun er hægt að láta

tækið læsa sér sjálfvirkt eftir tiltekinn tíma. Læst tæki er ekki hægt að nota fyrr en

réttur læsingakóði hefur verið sleginn inn. Veldu

Enginn

til að slökkva á sjálfvirkri

læsingu.
Læsa ef skipt um SIM-kort — Stilltu tækið þannig að beðið sé um læsingarkóða þegar

óþekkt SIM-kort er sett inn í það. Tækið heldur þá saman lista yfir þau SIM-kort sem

það viðurkennir sem kort eigandans.
Ytri símalæsing — Gerðu ytri læsingu virka eða óvirka.
Lokaður notendahópur — Tilgreindu hóp fólks sem þú getur hringt í og sem getur

hringt í þig (sérþjónusta).
Staðfesta SIM-þjónustu — Láttu tækið birta staðfestingarboð þegar þú notar SIM-

kortsþjónustu (sérþjónusta).