Nokia C5 03 - Hleðsla rafhlöðunnar

background image

Hleðsla rafhlöðunnar
Rafhlaðan hefur verið hlaðin að hluta í verksmiðjunni en e.t.v. þarftu að endurhlaða

hana áður en þú getur kveikt á tækinu í fyrsta sinn. Ef tækið sýnir að lítil hleðsla sé

eftir skaltu gera eftirfarandi:

1 Stingdu hleðslutækinu í samband við innstungu.
2 Tengdu hleðslutækið við tækið.

3 Þegar tækið sýnir að rafhlaðan er fullhlaðin skaltu fyrst taka hleðslutækið úr

sambandi við tækið og síðan úr innstungunni.

Þú þarft ekki að hlaða rafhlöðuna í tiltekinn tíma og þú getur notað tækið á meðan

það er í hleðslu. Ef rafhlaðan er alveg tóm geta liðið nokkrar mínútur þar til

hleðsluvísirinn birtist á skjánum eða þar til hægt er að hringja.

Ábending: Taka skal hleðslutækið úr sambandi við rafmagnsinnstungu þegar það er

ekki í notkun. Hleðslutæki sem er í sambandi við innstungu eyðir rafmagni þótt það

sé ekki tengt við tækið.

USB-hleðsla

Hægt er að nota USB-hleðslu ef rafmagnsinnstunga er ekki til staðar. Hægt er að flytja

gögn á meðan tækið er í hleðslu. Mjög misjafnt er hvernig USB-hleðsla virkar og langur

tími kann að líða þar til hleðslan hefst og tækið verður starfhæft.

1 Notaðu samhæfa USB-gagnasnúru til að tengja tækið við samhæft USB-tæki.

Það fer eftir tækinu sem notað er til hleðslu hve langur tími líður þar til hleðslan

hefst.

2 Ef kveikt er á tækinu skaltu velurðu USB-stillingu.

Aðeins má tengja tækið við vörur með vörumerkinu USB-IF.

10

Tækið tekið í notkun