Nokia C5 03 - SIM-korti og rafhlöðu komið fyrir

background image

SIM-korti og rafhlöðu komið fyrir
Örugg fjarlæging. Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður en

rafhlaðan er fjarlægð.

Mikilvægt: Þetta tæki er aðeins ætlað til notkunar með venjulegu SIM-korti (sjá

mynd). Ef ósamhæf SIM-kort eru notuð gæti það skaðað kortið eða tækið og gæti

skemmt gögn sem vistuð eru á kortinu. Fáðu upplýsingar hjá símafyrirtækinu um

notkun SIM-korta með mini-UICC straumloka.

Hugsanlega hefur SIM-korti þegar verið komið fyrir í tækinu. Ef ekki skaltu gera

eftirfarandi:

1 Fjarlægðu bakhliðina.

2 Ef rafhlaðan er í tækinu skaltu taka hana út.

3 Ýttu á SIM-kortsfestinguna til að taka hana úr lás.

6

Tækið tekið í notkun

background image

4 Taktu SIM-kortsfestinguna upp.

5 Gættu þess að snertiflötur SIM-kortsins snúi að tækinu og renndu SIM-kortinu í

SIM-kortsfestinguna.

6 Settu SIM-kortsfestinguna á sinn stað. Renndu SIM-kortsfestinguna til svo að hún

læsist.

7 Gættu að snertum rafhlöðunnar og settu rafhlöðuna í.

Tækið tekið í notkun

7

background image

8 Til að setja bakhliðina aftur á tækið skaltu beina efri lásunum að raufunum og ýta

svo niður þar til hún smellur á sinn stað.

Ef SIM-kortið er ekki á sínum stað er aðeins hægt að nota tækið í ótengdu sniði.