Nokia C5 03 - Snið án tengingar

background image

Snið án tengingar
Ótengt snið gerir þér kleift að nota tækið án þess að tengjast við farsímakerfið. Þegar

ótengda sniðið er valið er hægt að nota tækið án SIM-korts.

Virkja ótengt snið
Ýttu stutt á rofann og veldu

Án tengingar

.

Þegar þú virkjar ótengt snið lokast tengingin við farsímakerfið. Lokað er á allar

sendingar útvarpsmerkja til og frá tækinu til farsímakerfisins. Ef þú reynir að senda

skilaboð um farsímakerfið er þeim komið fyrir í úthólfinu þaðan sem þau eru send

síðar.

Mikilvægt: Í ótengdu sniði er ekki hægt að hringja, svara símtölum eða nota aðra

valkosti þar sem þörf er á tengingu við farsímakerfi. Hugsanlega er hægt að hringja í

það neyðarnúmer sem er forritað í tækið. Eigi að hringja úr tækinu þarf fyrst að skipta

um snið.

Þegar þú hefur valið ótengda sniðið geturðu áfram notað þráðlaust staðarnet, t.d. til

þess að lesa tölvupóst eða vafra á internetinu. Einnig er hægt að nota Bluetooth-

tengingu í ótengda sniðinu. Mundu að fara að öllum viðeigandi öryggisreglum þegar

þú kemur á þráðlausri staðarnetstengingu eða Bluetooth-tengingu.