Nokia C5 03 - Um þráðlaust staðarnet

background image

Um þráðlaust staðarnet
Til að geta notað þráðlaust staðarnet verður slíkt net að vera til staðar og tækið að

vera tengt þráðlausu staðarneti. Sum þráðlaus staðarnet eru varin og það þarf að fá

aðgangsorð hjá þjónustuveitunni til að geta tengst þeim.

Til athugunar: Verið getur að hömlur séu á notkun þráðlausra staðarneta í sumum

löndum. Í Frakklandi er til dæmis aðeins heimilt að nota þráðlaust staðarnet

innanhúss. Frekari upplýsingar fást hjá yfirvöldum á staðnum.

Aðgerðir sem byggjast á þráðlausu staðarneti eða mega keyra í bakgrunni á meðan

aðrar aðgerðir eru notaðar ganga á rafhlöðu tækisins og draga úr endingu hennar.

Tækið þitt styður eftirtalda möguleika í þráðlausu staðarneti:

IEEE 802.11b/g og WAPI staðla

Notkun á tíðninni 2,4 GHz

WEP-dulkóðunarstaðalinn (Wired equivalent privacy) með allt að 128 bita lyklum,

þráðlaust staðarnet staðalinn (WPA) og 802.1x sannvottunaraðferðir. Aðeins er

hægt að nota þessa valkosti ef símkerfið styður þá.

Mikilvægt: Nota skal dulkóðun til að auka öryggi þráðlausrar staðarnetstengingar.

Notkun dulkóðunar dregur úr hættunni á því að einhver fái aðgang að gögnunum

þínum.