Nokia C5 03 - Gagnatengingar og aðgangsstaðir

background image

Gagnatengingar og aðgangsstaðir
Tækið styður pakkagagnatengingar (sérþjónusta), t.d. GPRS í GSM-símkerfi. Þegar

tækið er notað í GSM- og 3G-símkerfum er hægt að hafa margar gagnatengingar í

gangi samtímis og aðgangsstaðir geta deilt gagnatengingu. Í 3G-símkerfinu er ekki

slökkt á gagnatengingu þegar símtal er í gangi.

Einnig er hægt að koma á gagnatengingu við þráðlaus staðarnet. Aðeins er hægt að

tengjast við einn aðgangsstað fyrir þráðlaust staðarnet í einu, en nokkur forrit geta

hins vegar notað sama aðgangsstaðinn.

Til að koma á gagnatengingu verður aðgangsstaður að hafa verið valinn. Hægt er að

tilgreina mismunandi gerðir aðgangsstaða, líkt og:

MMS-aðgangsstað til að senda og taka við margmiðlunarskilaboðum,

Internetaðgangsstað (IAP) til að senda og taka við tölvupósti og tengjast við

internetið

Upplýsingar um hvaða gerð aðgangsstaðar þarf að nota fyrir tiltekna þjónustu fást

hjá þjónustuveitu. Þjónustuveitan gefur upplýsingar um pakkagagnaþjónustu og

áskrift að henni.