Stillingar símkerfis
Veldu
Valmynd
>
Stillingar
og
Tengingar
>
Símkerfi
.
Tækið getur skipt sjálfkrafa á milli GSM- og UMTS-símkerfanna. GSM-símkerfi eru
sýnd með . UMTS-símkerfi eru sýnd með
.
Veldu úr eftirfarandi:
Símkerfi — Veldu hvaða kerfi þú vilt nota. Ef þú velur
Tvöfalt kerfi
skiptir tækið
sjálfkrafa á milli GSM- og UMTS-símkerfanna í samræmi við kerfisstillingar og
reikisamninga á milli þjónustuveitna. Þjónustuveitan veitir nánari upplýsingar um
reikigjöld. Þessi valkostur sést aðeins ef þjónustuveitan styður hann.
Reikisamningur er samningur milli tveggja eða fleiri þjónustuveitna um að leyfa
notendum einnar veitunnar að nota þjónustu hinna.
Val á símafyrirtæki — Veldu
Sjálfvirkt
til að stilla tækið þannig að það leiti að og velji
eitt af þeim símkerfum sem eru í boði, eða
Handvirkt
til að velja símkerfi af lista. Ef
tengingin rofnar við símkerfið, sem valið var handvirkt, gefur tækið frá sér hljóðmerki
80
Tengimöguleikar
og biður um að símkerfi sé valið aftur. Símkerfið sem er valið verður að vera með
reikisamning við heimakerfið þitt.
Um endurvarpa — Láttu tækið gefa til kynna þegar það er notað í farsímakerfi sem
byggir á örbylgjutækni (MCN) og til að virkja móttöku upplýsinga frá endurvarpa.