Flýtiritun
Þegar orð er slegið inn í flýtiritun er einn talnatakki valinn fyrir hvern staf í orðinu. Í
flýtiritun er notuð innbyggð orðabók sem hægt er að bæta nýjum orðum inn í.
Flýtiritun er ekki í boði fyrir öll tungumál.
1 Til að kveikja á flýtiritun velurðu
>
Kveikja á flýtiritun
.
2 Skrifaðu orð. Veldu t.d. 6 fyrir N, 6 fyrir o, 5 fyrir k, 4 fyrir i og 2 fyrir a til að skrifa
„Nokia“ þegar enska orðabókin er valin.
Orðið sem stungið er upp á breytist eftir hvern staf sem er valinn.
3 Ef ekki kemur upp rétt orð velurðu * endurtekið þar til rétt niðurstaða birtist. Ef
orðið er ekki í orðabókinni velurðu
Stafa
, slærð orðið inn á venjulegan hátt og
velur síðan
Í lagi
.
Ef ? birtist fyrir aftan orðið er það ekki að finna í orðabókinni. Orði er bætt inn í
orðabókina með því að velja *, slá orðið inn á venjulegan hátt og velja síðan
Í
lagi
.
4 Til að slá inn punkt velurðu *.
5 Til að setja inn bil velurðu 0.